Hið versta hrakviðri

Hrakviðri í júnílokÞað er fátt hægt að segja um daginn í dag annað en að hér gekk yfir versta veður á þessum árstíma í manna minnum. Þó telja langminnugir að hugsanlega hafi komið svipaður dagur í júnílok 1932. Það rigndi um 60 mm seinni hluta nætur og í morgun, vindur hefur verið upp undir 20 metrum á sekúndu og hitinn fallinn niður í 10 gráður nú undir kvöldið. Tré hafa fokið, ferjur liggja í höfnum og þýskir túristar foknir til síns heima með tjöldum sínum og öðrum farangri.

Til þess að gera nú eitthvað úr deginum tókum við það til bragðs að fara í sund. Eina nothæfa sundlaugin fyrir fjölskyldufólk er í Horsens, en þótt veðrið væri mikið tekið að lagast tók um klukkustund að komast þangað. En við skemmtum okkur þar vel og lengi.

En veðurspáin er betri fyrir næstu daga og vonandi að við getum verið meira úti við, jafnvel komist með nestiskörfu niður að ströndinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón H. Hauksson

Gaman í Horsens. Ég minni á stórglæsilega vídeóklippu af undirrituðum á þessum vef þar sem hann stingur sér undurlétt og fimlega af gríðarlega háu stökkbretti einmitt þarna í Horsens. Það rigndi nú líka duglega þegar við keyrðum þarna yfir, þótt við höfum líklegast sloppið betur þá.

En Jónas, þú skuldar enn Frímanni upptökuna af honum á téðum palli :o)

Guðjón H. Hauksson, 28.6.2007 kl. 14:52

2 identicon

sæll Jónas

rakst á síðuna þína fyrir tilviljun í vetur og hef litið við annað slagið síðan. Er gamall nemandi þinn og hef haft gaman af að lesa um Danmerkurævintýri ykkar. Bjó þar sjálf og á þaðan góðar minningar, m.a um "óveðrið mikla", en þá fyrst fannst okkur Íslendingunum vera komið eitthvað veður.  Langaði bara að kvitta fyrir komurnar á síðuna nú þegar styttist í að þið haldið heim á Frón. Ef þið eigið lausan dag get ég mælt með ferð á Fjón ; www.egeskov.dk 

bestu kveðjur

Berglind I. (stúd. MA 1995)

Berglind (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Árósar

Tónlistarspilari

Bamses Venner - Klip i mit kørekort

Höfundur

Jónas Helgason
Jónas Helgason
Myndir og pistlar frá Árósum
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 098
  • 094
  • 090
  • 087
  • 086

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband