Færsluflokkur: Bloggar
17.9.2006 | 21:11
Íbúðin okkar og fleira
Er búinn að vera að brasa svolítið við að finna út hvernig myndum verði best komið fyrir þessum bloggvef mínum. Setti inn nokkrar myndir úr íbúðinni, svona rétt til þess að húsmóðirin sjái hve vel við komumst af, a.m.k. enn sem komið er.
Fleiri myndir bíða betri tíma. Má nefna myndir af fullum hundi á krá, bílastæðamerkingar eftir arkitekt sem sennilega hefur líka verið fullur og fleira skondið sem fyrir augu hefur borið.
Bloggar | Breytt 29.12.2007 kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2006 | 18:33
Kötturinn í sekknum
Þá erum við Bjarni búir að vera á annan mánuð hér í Árósum og búnir að að koma okkur notalega fyrir. Það var þó ekki heiglum hent að koma húsgagnalaus til útlanda og ætla að koma sér þar huggulega fyrir. Einkum þó og sér í lagi ef maður er húsmóðurlaus og með IKEA fóbíu. En þetta er nú allt komið og ég orðinn sérfræðingur í að skrúfa saman mublur úr Jysk Sengetojslager og IKEA. Raunar er ótrúleg hvað auðvelt er að komast billega frá hlutunum í þeim búðum.
En mér finnst alveg ótrúlega leiðinlegt að ganga um búðirnar og ákvað því að góðra manna ráði að leita líka að húsgögnum á vefnum "guloggratis.dk". Þar má finna allt milli himins og jarðar, en töluvert happadrætti hvað maður dettur ofan á. Ég byrjaði á því að kaupa hjónarúm af gömlum manni, þetta fína rúm með góðum dýnum, miklu betra en ég hafði ímyndað mér eftir auglýsingunni. Átti þar að auki skemmtilegasta spjall við karlinn sem bjó í þjónustuíbúð aldraðra langt úti í sveit. Ólíkt huggulegra en búðarlokurnar í IKEA. Er þó ekki alveg klár á því hvers vegna hann var að selja hjónarúmið!
Því næst skrifborð sem reyndist vera mubla úr barnaherbergi, en nýtist mér mjög vel. Og enn og aftur átti ég skemmtilegt spjall við hjónin sem seldu mér borðið. Taldi pabbinn sig hafa átt eina fjórhjóladrifna VW bílinn í Danmörku þar til ég renndi í hlað.
Í dag keypti ég svo köttinn í sekknum í orðsins fyllstu merkingu. Vantaði alltaf sófasett í konjaksstofuna og fann sett á vefnum sem leit vel út á mynd og kostaði lítið. Gamla konan sem átti settið var í sumarfríi á Grænlandi en dóttir hennar og tengdasonur voru með lykla og við mæltum okkur mót. Ég leigði mér tengivagn af stærstu gerð á bensínstöðinni og þræddi sveitavegi langt norður í land. Þar fann ég húsið sem var af eldri gerðinni og innbúið eftir því. Kerla var orðin ekkja, var að reyna að selja kofann og vildi losna við sem mest af dótinu. Sófasettið var í sjónvarpsholi sem karlinn hafði fyrir löngu hólfað af uppi á lofti, eftir að sófasettinu hafði verið komið þar fyrir. Það komst sem sagt engan veginn út úr herberginu nema út út um gluggann. Það hafðist þó að lokum. Verra er að settið hafði greinilega ekki verið hreinsað í allnokkur ár, og augljóst að köttur, nokkuð laus í hárum, hafi verið á heimilinu þessi ár. Settinu fylgdi sem sagt um það bil hálfur köttur. En ég átti skemmtilegar samræður við hjónin sem afhentu mér settið.
Ég dröslaði settinu þó heim, hristi úr því mesta köttinn og það fer nú bara bísna vel í stofunni. Þar má nú sitja og horfa yfir á Mols og Molsfjöllin miklu sem hérlendir eru svo stoltir af.
Sófasettið bíður svo bara eftir gestum og nægur bjór í ísskápnum...
Bloggar | Breytt 29.12.2007 kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Árósar
Tónlistarspilari
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar