9.7.2007 | 20:11
Blautur dagur í Bergen
Bergen stóð svo sannarlega undir nafni sem blautasta borg í Evrópu í dag. Við reyndum að skoða okkur um í borginni, en hrökkluðumst alltaf jafnharðan inn á veitingahús eða í verslanir undan vatnsveðrinu.
Innanhúss fengum við svo létt sjokk - verðlagið í þessum mikla ferðamannabæ er út úr öllu korti. Kannski bara gott að taka það út hér en ekki þegar heim er komið. Að kaupa sér hvítvínstár og lítinn bjór á um 1.300 íslenskar krónur er nú ekki í lagi!
En við reyndum að gera gott úr þessu öllu saman, maður á nú ekki brúðkaupsafmæli nema einu sinni á ári.
Núna undir kvöldið er að mestu stytt upp og við búin að troða í bílinn, sumt blautt, annað þurrt, allt í einum graut. Guð forði tollvörðum á Seyðisfirði frá því að fara að gramsa í dótinu okkar!
Leggjum svo í hann snemma í fyrramálið með Norrænu til Færeyja og Íslands.
Um bloggið
Árósar
Tónlistarspilari
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með daginn kæru hjónakrútt.
Gangi ykkur vel á leiðinni heim.
Af veðrinu hér er það hins vegar að frétta að í morgun keyrðum við kornin útúr þokunni til Mývatnssveitar í 15 stiga hita sól og blíðu. Þáðum kaffi og kleinur á Grænavatni og héldum sem leið lá til Húsavíkur í 6 stiga hita og skýjaþykkni. Veðurspár fyrir norðurland sýna síðan lítið annað skúri, ský og rigningu. Ég held þið séuð að fara í ranga átt!!!
En það verður gaman að fá ykkur heim aftur hvað sem veðrinu líður.
Bestu kveðjur
Helga Þyri og Þórður
Helga Þyri og Þórður (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 21:57
Til hamingju með brúðkaupsafmælið foreldrar góðir, rétt gleymdi þessu þegar ég heyrði í þér í dag.
Góða ferð
Tommi og co
Tommi sonur (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 23:40
Sæl hjón og til hamingju með afmælið.
Við erum núna í Danmörku, nánar tiltekið á tjaldsvæðinu í Ebeltoft. Hér er sól og vindur af hafi. Helga segir að þetta sé kaldur vindur, hún þykist vera í sólbaði en ég sit hjá henni í flíspeysu og finn ekki fyrir kulda.
Danir kunna að búa að sínum gestum, þetta er fyrsta tjaldsvæðið sem við erum á sem er með þráðlaust netsamband enda náum við engu sambandi við Sindra Geir.
Bestu kveðjur, Óskar, Helga og synir.
Óskar Ingi Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 09:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.