Þessir "hönnuðir"!

Plakatið í vinnsluÉg sé alltaf betur og betur hve sú stétt manna sem setja má undir hattinn "hönnuðir" er skrítin og skemmtileg. Hér innan fjöldskyldunnar hef ég oft á orði að þeir séu margir ansi "Tinnulegir" (Tinna - þetta er jákvætt hugtak!). Með öðrum orðum, hugmyndaflugið og aðferðir við að útfæra hugmyndirnar virðast engin takmörk eiga sér.

Ég er sem sagt búinn að sitja áfanga í hönnun síðan um áramót. Nú er honum að ljúka og eigum við að skila frumgerð af verkefnum eftir viku. Ég er með mjög fínt verkefni í höndunum, kannski þó nokkuð jarðbundið eins og við er að búast af gömlum manni.

Ég stóð í þeirri meiningu að við ættum bara að sýna frumgerðina á næsta föstudag. Hún er tilbúin, enda ætlum við hjónin að leggja land undir fót og eyða allri næstu viku í Þýskalandi og Belgíu. En þá kemur allt í einu upp á yfirborðið í gær að við eigum líka að kynna vinnuferilinn og aðferðirnar sem höfum beitt - með því að búa til plakat! Það á allt að vera svo "sýnilegt og áþreifanlegt"!

Ég held raunar í dag að ég hljóti að hafa misskilið eitthvað, en úr því við erum að fara úr bænum og komum ekki heim fyrr en rétt áður en ég á að skila verkefninu stend ég, háskólaneminn, nú hér á laugardagsmorgni og klippi og lími myndir og textabrot á plakat - undir háðsglósum hinna á heimilinu. En það skemmtilega við þetta er að þetta sýnir manni ótrúlega vel hvað maður hefur verið að gera á önninni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jónas, ég er mikill Tinnaðdáandi og safna bókunum um þann mæta mann.  Veit ekki afhverju en það hlakkar í mér að þú sért að búa til plakat, minnir mig á gamla góða uppeldisfræðitíma

Brynja (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Árósar

Tónlistarspilari

Bamses Venner - Klip i mit kørekort

Höfundur

Jónas Helgason
Jónas Helgason
Myndir og pistlar frá Árósum
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 098
  • 094
  • 090
  • 087
  • 086

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband