Síðustu gestirnir

Haraldur og Rósa - síðustu gestirnirNú er stutt eftir, en lengi er þó von á einum eins og þar segir. Haraldur og Rósa mættu hér í bröns í morgun. Gaman að fá svona Danmerkuráhugafólk heimsókn. Spjölluðum lengi og fórum svo í bíltúr um hverfið.

Annars fór dagurinn í síðustu verslunarferðina í bæinn og svolítið af þrifum. Gáfum vinum okkar, Pólverjunum dálítið af húsgögnum og svo ónýtt sjónvarpstæki sem þeir eru vissir um að þeir geti gert við og notað.

Fórum svo í kvöld á hverfiskrána okkar við smábátahöfnina og borðuðum þar kvöldverð og kvöddum starfsliðið. Gengum heim, og þótt þetta sé aðeins 10 mínútna gangur urðum við holdvot, því nú rignir sem aldrei fyrr. Og svo les maður á bloggsíðum Akureyringa að þeir fagni rigningu dagsins!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl bæði. Ætlum að óska ykkur góðrar ferðar heim, siglandi og akandi.Bíðum síðan eftir að endurgjalda frábærar´móttokur í mars. Sumarkveðjur úr Kjarrheiðinni.  Gerður og Gylfi.

,Ps. Jónas minn, ekki gleyma pokanum mínum úr Stof og Stilþ Kveðja

Gerdur Janusdóttir (IP-tala skráð) 6.7.2007 kl. 09:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Árósar

Tónlistarspilari

Bamses Venner - Klip i mit kørekort

Höfundur

Jónas Helgason
Jónas Helgason
Myndir og pistlar frá Árósum
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 098
  • 094
  • 090
  • 087
  • 086

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband